Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Laufey Frímannsdóttir
  • Netfang: laufey22@hotmail.com
  • Um mig: Ég er 18 ára stelpa frá RFJ, en er nú stödd í Lýðháskóla í Danmörku. :)
  • Annað: Lífið er yndislegt, njóttu þess.. :)

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

síðustu dagarnir

18. júní 2009 klukkan 11:39
Hæ hó ! :)

Jæja, þá er bara komið að því að pakka niður... Finnst það soldið skrítið, núna á ég bara eftir að sofa 2 nætur í þessu herbergi..og svo er bara súper fest á morgun eða kveðjustund aðalega held ég. Svo er bara flug frá Aalaborg til Íslands en millilendi samt í Gautaborg! Iceland express er eitthvað að sameina í flugvélar. Vesen.. En svo lendi ég bara í keflavík um 15, og svo kl 18 að staðartíma flýg ég austur.. :)
Svo tekur bara við helling af vinnu þegar ég kem heim..

Svo í haust veit ég ei hvað ég skal gera. Ég sótti um í VMA á ak, en fékk ekki inn. Þannig að ég er í smá vanda, en.... Þegar einar dyr lokast - opnast aðrar. Allavega veit ég það að ég geri ekki neitt.. í versta falli fer ég bara að vinna. :)

Fór inní Aalaborg í gær í skrúðgöngu og eitthvað, bjóst við grilluðum SS pulsum, en það voru bara eitthverjar vondar danskar pulsur ! :( smá svekk í gangi... en það var ekkert að gera í því..

En ég segi þetta fínt í bili, næsta blogg verður ábyggilga bara á íslandi.. :)

VI SIS :)
Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

Hæhæ :)

07. júní 2009 klukkan 15:07
Góðan dag og gleðilegan sjómannadag:)

Eftir nákvæmlega 2 vikur verð ég bara í flugvélinni á leið á klakan ! :) þessi vika var mjög fljót að líða þrátt fyrir heimþrá.
Um helgina var Familie dagur. (eða í gær) Því miður er fjölskyldan sem býr hér í DK uppá íslandi þessa dagana. :P Hittist skemmtilega á. En það var allavega bara fínt, það var kynning á nokkrum af þeim íþróttum sem hægt er að stunda hér, ég spilaði strandblak í hálftíma og sýndum æfingar sem við gerum. Svo sýndum við Show-ið sem við erum búin að vera að æfa síðan eftir páska. Sýndum það einnig á elev-möde í lok apríl og svo sýndum við hluta úr því útá La Santa. En ég var ekki mjög heppin í gær (myndi ég segja allavega). Í einu atriðinu var þema úr pirets of the carabean (öll atriðin voru með þema úr eitthveri mynd) og það var spring eða fimleikastökk aðalatriðið og þeim vantaði nokkra til að fara bara í handahlaup eða eitthvað og ég bauð mig fram, en þegar við vorum að æfa fyrir þetta þá fór ég í hring í loftinu ( og ég get það vel ! ) en eitthvað fór úrskeiðis og ég hoppaði ekki nógu hátt og lennti þannig að ég beyglaði uppá tærnar á mér. ! Er nú með doubbel vinstri fót og allan fjólubláan. er samt búin að lata kíkja á hann en kallin kreisti fótinn í 2 sek og sagði að ekkert væri að. Bara að liggja í rúmi í viku og nota hækjur svo hann nái að hvílast. Hann var í voða grínstuðu, því ég spurði hvort ég ætti eitthvað að kæla (skal jeg ha is på?) þá spurði hann vanillu eða jarðaberja?  voða grínisti hér á ferð. En Helle, kennari sem hjálpaði mér við þetta, ætlar að fylgjast með mér í næstu viku því hún hefur lent í svona aðstæðum og hún er með bæklaðar tær það sem eftir er, getur ekki staðið á tám t.d. Þannig að hún vill ekki að þetta komi fyrir mig.
Samt soldið leiðinlegt því að næsta vika er síðasta vikan í fögunum ! og svo er sérstök vika í síðustu vikunni. Þannig að ég verð öruggega ekki með meir :( Nema ef það lagist í grænum kvelli !

Það var kveðjustund í morgun ! :( Ungverjarnir lögðu af stað í morgun. Hefði allveg viljað hafa þær út skólann, erum orðnar svo góðar vinkonur en við lofuðumst að hittast aftur á íslandi eða ungverjalandi. :) Aldrei að vita nema að maður skreppi þangað í framtíðinni. Er allveg til í það eitthvern tíma. En það verður tómlegt í international tímunum, þar sem við verðum bara 3 + Hans "uppáhaldskennaranum mínum" (sagt í kaldhæðni:P) Finnst alltaf merkilegt að þessi kall er búin að vera yfir 20 ár í þessum skóla og fær ekki nóg, og líka að hann skuli vera international kennari þar sem hann er lélegastur í ensku af öllum kennurunm.

jæja, vi ses snart !:)

Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

La Santa

30. maí 2009 klukkan 20:14
Vola :)

Þá er maður komin heim frá Lanzarote. Meira ferðalagið sem fylgir þessu.

--> Við lögðum af stað fimmtudaginn 21.maí um miðnætti. Keyrðum í rútu til Köben og vorum þar um svona 5-6 leytið. Þurftum að bíða í eitthvern klukkutíma áður en við gátum tékkað okkur inn. Svo var bara fríhöfnin og svo 5 tíma flug. Lögðum svo af stað frá hótelinu í gær um 11 að staðartíma frá hótelinu, í 4,5 tíma flug,lögðum svo af stað til Brönderslev um 9 leytið í gærkvöldi og vorum ekki komin á leiðarenda fyrr en kl 3, hálf 4 í nótt að staðartíma.

--> Hver morgundagur byrjaði á sameiginlegri morgunleikfimi sem "the Green Team" Skipulagði. Green Team er hópur af fólki sem heldur öllum íþróttunum og afþreyingunni uppi. Mjög skemmtielgar teyju/hreyfiæfingar. Eftir það þá var frjálst val um að labba/hlaupa 2,3,4 eða 5 km. Svo var hægt að velja um fullt af allskonar leikfimi og íþróttum. Strandblak, Tennis, Veggtennis, Batminton, sund o.s.frv. Einn daginn var hægt að velja Windsurf. Veit ekki hvað það heitir á íslensku en ég skellti mér í það og það var roosalega gaman. Fengum samt ekkert mikin tíma til að sigla því það tók svo langan tíma að læra hvernig maður ætti að sigla. Vorum það mörg.

--> á Miðvikudaginn 27.maí. Fór ég í Fitness Chalange (?) og stóð mig líka svona svaka vel.
Þetta er eitthvað það sem ræktin á hótelinu er með og geta allir farið í þetta. Það eru þrjú level grænt, blátt og rautt. Rautt er erfiðast og græna léttast. Ég skellti mér í blá levelið. Það var svona:
- Hjóla 1,5 km
- Róa 500 m á leveli 6
- 40 jafnvægismagaæfingar
- 20 armbeygjur
- 60 step ups uppá pall með 10kg
- 40 sit ups
- 40 axlarpressur með 8kg
- hlaupa 600 m með 8 % halla og
- 30 bekkpressa með 20 kg (bara stönging)
Þetta massaði ég á tímanum 15:05 :)
- 3 mín fljótari en recordið frá vikunni á undan
- og 2 mín lengur en besta recordið :) Er allveg rosalega sátt með þetta. Við vorum tvær stelpur úr skólanum sem tókum þetta, ég og Elín, Elín var með tíman 16:50 held ég. Svo voru tveir strákar held ég líka sem tóku blá levelið líka (bara fyrir stráka) :P Og ég var með betri tíma en þeir báðir. :) Um kvöldið var svo fundur með öllum úr skólanum, einsog alltaf, og þar var sagt frá þessu og mín fékk klapp frá öllum:)


--> Ironman.
3,8 km sund 180 km Hjól 42,2 km hlaup
Nú erum við farin að tala um netta klikkun. Þetta er eitthvað sem árlega held ég víðsvegar um heiminn. Þetta var allaveg síðasta laugardag útá lanzarote. Þar komu saman fullt af fólki sem glímdi við þetta. Engin samt frá skólanum sem fór í þetta en stefna samt á þetta í framtíðinni. Hinsvegar var eitthvað að fólki frá skólnum sem voru að hjálpa til við að halda þetta og gekk allt vel. Á fimmtudaginn skipulagði svo skólinn hálfan Ironman, 1/4 ironman og svo 1/10 ironman eða þríþraut, held ég að það heiti. Hálfur Ironman var 1,9 km sund, 90 km hjól og 21 km hlaup.Það voru margir sem að glímdu við þetta hinsvegar. Elín rústaði hálfum Ironman á 7 tíminum, sem er bara góður tími miðað við að hún ákvað þetta um kvöldið og var samt í smá efa um morgunin en ákvað svo bara að skella sér í þetta. Mjög stollt af henni. Arnar byrjaði á hálfum Ironmani líka en það fór alltá afturfótunum hjá honum í hjólreiðunum þannig að hann hætti þar. Biggi fór í 1/4 ironman en sleppti sundinu, treysti sér ekki í það. Svo var Sigga flottust á því. Hún, sem æfði sund í mörg ár en hefur ekki synt í nokkur ár skellti sér í heilan Ironman sund. semsagt 3,8 km. Ekkert mál fyrir hana. Ég, fávitin, fattaði alltof seinnt að ég hefði allveg getað farið í þríþrautina. Dauð sé eftir því að hafa ekki farið í það. Það voru 400 m Sund, 20km hjól held ég og svo 4,8 km hlaup. Geri það bara í sumar á Íslandi. :)
Á sunnudaginn var svo Ironman partý. Þá var Life music langt frammá nótt og mikið fjör.


--> í gær var svo kveðjustund. Elín rejsaði til íslands strax eftir flugið frá la santa. Hún þarf að vera viðstödd fermingju bróður síns, þannig að það tekur ekki fyrir hana að koma aftur hingað út þar sem það er svo lítið eftir af skólanum.

--> á meðan við vorum þarna úti, þurftum við að sjá okkur fyrir mat allan tíman. Það var í svo sem ágætt. Fá smá tilbreytingu frá því sem er hér í skólanum. Ég fékk samt smá heimþrá á meðan ég var þarna niðurfrá. Gæti verið að það sé útaf því að við þurftum að sjá sjálf fyrir mat, að það sé svo mikil öryggiskend að fá tilbúin mat 3 á dag kl þetta. einsog í skólanum. en ég er komin yfir þessa heimþrá held ég, því það er svo stutt þangað til að maður kemur.

--> Jæja, þetta er orðið bara heljarinnar færsla, þannig að ég læt í mér heyra fyrr en síðar. :)

Hej hej.. :)





Laufey Frímannsdóttir
1 athugasemd

Stutt vika :)

18. maí 2009 klukkan 17:05

Haallló :)

Er alltaf í vandræðum með að byrja..

Í dag er 18.maí, og aðeins 4 dagar í sólina, ströndina og fullt að allskonar leikjum og íþróttum á Lanzarote :) er orðin mjög spennt yfir þessari ferð og smá knútur í maganum. Helmingurinn af skólanum fer frá Köben og hinir frá Billund. Ég fer frá Köben og leggjum af stað um miðnætti á fimmtudaginn, keyrum alla nóttina og svo í loftið kl 8 eða 9 á föstudagsmorguninn. Verðum í viku þarna niðrifrá og svo komum við heim 29.maí að kvöldi. Þá er Hvítasunnan bara komin og Tylstrumparnir og Hjalti frændi bara uppá klaka og ég hér eftir í danaveldi. Svo er bara rétt rúmur mánuður þangað til að ég stíg uppá klakan.. :)

Ætla að segja hér að mig dreymdi draum um daginn. Ég var búin að eignast barn, bara nokkra daga gamalt - ok með það en svo var greyið barnið búin að æla svona eins og lítil börn gera en þetta var yfir allt herbergið !! og mér brá ekkert smá mikið. En svo fór ég inná draumur.is og að sjá ælu merkir að góður vinur muni koma mér til aðstoðar :) Svo fannst mér svo skrírið að ég hafi ný búin að eignast barn en var samt í skólanum allveg fram að því og var ekki með neina óléttubumbu... hehe, svona eru draumarnir skrítnir.. :)

Var áðan að skoða MuMu. Fórum með International krökkunum á risastóran sveitabæ sem voru reyndar bara með 500 kýr ! Ekkert smá mikið.. Svo þegar við vorum þarna áðan, byrjaði þá ekki þessi HELLI demba ! WHAT´S UP WITH THAT ?! og þrumur og eldingarnar voru þarna aðsjálfsögðu..  En það er búið að stytta upp núna, vonum bara að það haldist þangað til að ég fer heim, þá má rigna fyrir mér.. :)

Eurovison-helgin búin í ár.  Er mjög sátt með að fyrstu 2 sætin séum Norðurlöndin :) Frábær árangur hjá Jóhönnu og öllum hinum. Svo er svo gaman í úrslitunum þegar Ísland er svona ofarlega, og spenningurinn í hámarki :)

Hef nú ekki meira að segja frá. Sé til hvort ég skelli inn einni færslu áður en ég fer, det kommer bara i lys.. :)


Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

Sátt með þetta....

07. maí 2009 klukkan 19:43
Jáp, ég er bara sátt með lífið hér. Tíminn líður orðið svo hratt og aðeins 2 VIKUR í sólina miklu - Lanzarote :)

Í dag var International dagur í skólaum. Þá vorum við international krakkarnir að halda daginn, elduðum mat frá okkar löndum. Fórum í frjálsar íþróttir í morgun og eftir hádegið var workshop þar sem hver og einn var með stöð um landið sitt. Ég, Biggi og Arnar vorum saman með stöð fyrir Ísland. Það gekk allt mjög vel, kynntum landið og sögðum frá því helsta einsog náttúrunni, dýrunum, víkingunum, Jón Páli og svo fallegu konunum sem hafa verið Miss World :) svo sýndum við að sjálfsögðu glímu. Það gekk svona glimrandi vel og allri voða sáttir með þetta. Ég skellti Arnar og allir urðu rosa hissa, vissu ekki hvað í mér bjó :) Svona er þetta.

Það er extra löng helgi núna, það er frí á morgun í skólanum og hann byrjar ekki fyrr en kl 12 á mánudaginn :) þannig að það er bara fjör, flest allir fara náttlega heim til sín en það verða vonandi eitthverjir í skólanum :)

Er núna búin að staðfesta flugfar heim :) 21. júní frá Aalaborg þannig að ég þarf ekki að ferðast til Köben til að taka flug þaðan. En ég þarf samtað fara frá Rvk - Egs. En það er miklu betra heldur en að vera á kastrup flugvelli alein.. ;P þótt ég hafi nú gert það áður þá er það algjör óþarfi fyrst hitt stendur til boða :)

Segjum þetta gott í bili. Hafið það gott um helgina :)

Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

ammili :)

22. apríl 2009 klukkan 23:52

Jamm, er þá 18 afmælisdagurinn að renna upp :) Er búin að hafa það mjög fínt í dag. Byrjaði daginn á því að vera vakin með afmælissöng á íslensku og ensku (því það voru ungverjar með) fékk líka disk af kanilsníglum (snúðum) í afmælisgjöf :)
Svo þegar eitthver á afmæli í skólanum er hefð fyrir því að standa uppá stól í hádegismatnum og svo er sungið fyrir þig, þannig að ég fékk söng á dönsku líka. Svo leið dagurinn bara og ég fór í kvöldmat en hann var samt ekkert góuður :( en það var í góðu lagi, skellti mér bara í ræktina kom svo heim í sturtu og svo var það bara afmæliskakan eftir. Fékk heilar tvær kökur marens og skúffuköku frá fólkinu í tylstrup og við settumst bara niður með þessar kökur og svo fylgdu kerti með og svo var sungið einu sinni enn söngurinn og blásið á kertin :) einsog í gamla daga .. :) Þetta var meget hygglegt allt saman.

En á morgun er ég að fara á århus með eitthvað af krökkum í skólanum að keppa í volley. Förum á morgun og komum seinnipartinn á föstudaginn. keppa báða dagana. Bara stuð næstu daga :)

Eeen er farin.
Hej hej :)
Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

páskafríð búið og allt sett í gang aftur :)

17. apríl 2009 klukkan 11:10
Jamm, páskarnir liðnir og mætt í skólann aftur.
Var bara í Tylstrup yfir páskahátíðarnar í sól og blíðu. Fórum í göngutúr á stuttbolnum og var mjög heitt þrátt fyrir það ! :) fórum einnig í sund, í bæinn að versla ásamt því að taka því rólega bara.
Ætlaði að fara í skólann á þriðjudaginn en var bara eitthvað veik, þannig að ég fresti því þangað til á miðvikudaginn. var með magapest, svima og hausverk. Er reyndar enn að finna fyrir smá magapínu.


EN..um helgina erum við að fara sína "SHOW" sem er á hverri önn. Þetta er svakalega flott hjá öllum og mikið búið að æfa á stuttum tíma. Mikð af dansi, hoppi og húllumhæ ! Svo koma fullt af gömlum nemendum úr skólanum að horfa á og svo verður eitt stórt fest um kvöldið.

Svo styttist óðum í að maður fari að koma heim ! :) Reikna með að fljúja til íslands 21.júní frá Aalaborg til Keflavíkur. Er samt ekki búin að staðfesta það. En það á eftir að vera rosa fljótt að líða. Nú er skemmtilegasti tími ársins að byrja : SUMARIÐ Það er reyndar löngu komið hingað og örugglega allveg að koma til íslands :) ef það er ekki bara að koma.. Svo á minns afmæli bara í næstu viku.. þá eiga foreldrar mínir bara eina litla frekjudós.. :P nei ég segi svona.. :)

Bið að heilsa íslandi.. :)
Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

Þemadagarnir

08. apríl 2009 klukkan 11:53
Góðan dag.

í dag var síðasti dagur fyrir páskafrí en í þessari viku voru þemadagar. Ég veit ekki allveg hvað þemað var en held samt að það hafi verið "at hygge sig" gerðum allavega fullt af því :) Á mánudaginn byrjuðum við að búa til flugdreka. Svo fórum við með rútu eitthvað lengst í burtu, keyrðum allavega í 45 mín held ég, enduðum útí eitthverjum skóg og fórum í leik sem heitir stratego, löbbuðum svo niðrá strönd og þar prófuðum við flugdrekana okkar. Flugdrekinn sem mitt lið gerði var samt gallaður - hann flaug ekki ! efast samt ekki um að hann hafi verið flottastur.. :)
Þegar það var búið fengum við skóflu og fötu og áttum að búa til eitthvert listaverk úr sandinum. Við bjuggum til kastala og hann vann verðlaunin - sem var eitt stykki agúrka ! :) hehe.. Eftir það var skellt sér í sjóinn !!! við erum ekki að tala um að stinga tánum ofaní, heldur bara stinga öllum kroppnum ofaní. Mér fannst aðeins of kallt fyrir þetta. Um kvöldið var svo "afslappning". Þá mættum við öll inní sal og þar voru dýnur og við áttum bara að liggja og hlusta á e-h konu sem sagði okkur að kreppa einn og einn vöðva í einu og slaka svo á. Þetta var voða notalegt.
Á þriðjudaginn byrjuðum við daginn á því að fara á hláturnámskeiði ! ég hló nú allveg en það var bara útaf því að hrofið á hina :) ég gat ekki hlegið svona alltí einu og útaf engu. Svo fórum við í sund í marga leiki og voða gaman. Svo var Workshop eftir sundið. Þar máttum við ráða á milli :
  - "hyg og byg" kveikir bál, kveikir í grillunum og gerir klárt fyrir hyggekvöld úti við varðeldinn í  kvöld:)
  - "shake and bake" bakar kökur fyrir kvöldið
  - "Gak og løjer " gerir skemmtiatriði fyrir kvöldið
  - "Frikvarter" alls kyns barnaleikir, kýló, eina króna, parís, sipp og fleira skemmtilegt:)
Um kvöldið var svo grillmatur við varðeldinn, sungið, farið í spurningaleik og borðuð kaka :)

Í dag var svo leika með dýr í salnum. Fórum í fiskafótbolta - þá fengum við botnlaus plastglös og settum fyrir augun. Það var svo fyndið að hrorfa á þetta, því maður sér ekkert nema beint út og þá er mjög erfitt að hitta boltan! :) Svo var farið í köngulóafótbolta, það var líka ágætt, erfiðara fyrir hendurnar samt :P svo var mjög góður páska-matur í hádegismatinn. Svo Kom páskafríð. Fer yfir í Tylstrup og verð þar yfir páskana, byrja svo í skólanum aftur þriðjudaginn 14 apríl.

Gleðilega páska allir ! :)
Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

nýtt blogg í nýjum mánuði :)

01. apríl 2009 klukkan 23:06

Já, apríl-mánuður er gengin í garð. Það er náttlega bara fínt, páskarnir bara eftir rúma viku og svo síðar í mánuðinum á minns afmæli :)

Síðustu helgi var svokölluð Venneweekend. Þá máttu allir 90 nemendurnir bjóða vinum sínum í heimsókn yfir eina helgi og var eitthvað gert saman. Ég reyndar beilaði á þessari helgi og fór yfir í Tylstrup, því ég var ekki allveg að fíla þetta, fannst vera OF mikið af fólki. En ég er búin að frétta að þetta hafi verið mjög gaman. En ég hafði það bara fínt þarna "heima" einsog alltaf :)
Sumartíminn er nú komin, hann kom á laugardagskvöld/nótt. Það þýðir að nú munar tveimur tímum á íslandi og danmörk. Vorum að spila þetta kvöld ásamt tveimur öðrum íslendingum og svo var klukkan alltí einu orðin hálf fjögur þegar við hættum, því klukkan breyttist alltíeinu :P

Þessi vika er búin að vera voða róleg. Held að það sé útaf því að það er búið að vera frí í moduli C alla þessa viku, og verður það það sem eftir er. Fór í fitness í gær og það var spinning tími, og já ég svitnaði ekkert lítið, aldrei svitnað svona mikið allavega í spinningtíma. :P
Í gær fór Arnar (annar íslenski strákurinn hér ) heim til íslands og planið hjá honum er að koma ekki aftur. Það er soldið skrítið að hafa hann ekki lengur, en kanski kemur hann aftur, Biggi æltar að reyna að toga hann aftur hingað út eftir páskafrí..:P hehe.. :)

Látum þetta gott heita í bili.. allavega þangað til næst :)

- Laufey
Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

er líða fer að páskum :)

26. mars 2009 klukkan 22:01
Já einsog titillinn segir þá líður óðum að páskum. Einungis nokkrir dagar í þá :)

Þessi vika er búin að vera skítsæmileg. Byrjaði vikuna á grundtræningu einsog alltaf. Tók ágætlega á því, allavega lak smá sviti. Endurtek svo leikin aftur á morgun :) Á þriðjudaginn fór ég svo með Adventure-liðinu eitthvað lengra en Aalaborg í stærstu og flottustu mounteinbike-brautina - 23 km. Það var mjög gaman. kláruðum brautina á minnir mig 2 tímum, ókum svo inní aalaborg og fengum okkur kvöldmat og svo var brunað heim. Í dag fórum við svo að klifra í nýju staurunum hér úti. Teambuildarnir voru í síðustu viku að byggja nýtt adventure-svæði, með eitthverju kofa, og svo bálstæði þar sem hægt er að grilla brauð og fleira. En já við prufuðum þessa stura, mig minnir að sturinn sem ég fór sé 20 metrar, en verið róleg, ég fór ekki allaleiðina upp því ég fann ekki fyrir puttunum þegar ég var langleiðina komin upp. Skíta kuldi úti og að klifra með enga vetlinga. Það er allveg hægt að vera með vetlinga á meðan maður klifrar en það er miklu betra grip án vetlinga. Þegar líður fer að vori og sumri þá verður þetta súper flott :)

Ég sótti um í mötuneytinu í álverinu eitthvertíman og fékk jákvætt svar í dag :) þannig að ég verð þar í sumar í 100% dagvinnu. Þannig að ég verð að vinna 2 og stundum 3 daga í einu og svo 2 daga frí og aðrahverja helgi (held ég). og þegar ég er í frí þá fæ ég kanski eitthvað að vinna í olís, ef það hentar þar :) þannig að ég er nokkuð sátt með að hafa fengið vinnu í þessu ástandi sem er búið að hrjá ísland í alltof langan tíma ! Svo afþví að ég er að spugglera í að fara til Akureyrar næsta haust þá er möguleiki að ég fái vinnu þar með skóla því Lostæti er jú frá AK.

Ég hef verið spá í að koma heim um hvítasunnu, og ég held að ég geri það. Er samt ekki endanlega ákveðið. Langar það samt agalega mikið. en það kemur í ljós síðar.

Læt þetta duga í bili, hafið það gott um helgina :)


 

Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

uge 12

19. mars 2009 klukkan 21:54

Gott kvöld.
Af mér er bara allt gott að frétta. Bara venjuleg vika að enda komin og helgin kemur lige om lidt. :)

Á þriðjudaginn þá fór ég í mounteinbike. Finnst það alltaf jafn fyndið að vera í DK og fara á mounteinbike. En það er allveg hægt að æfa sig í því skóginum og þar eru líkar smá brekkur og drulla og ef maður hefur ýmindunarafl þá gengur þetta allveg. Þetta stóðu uppúr í þessari viku.

En ég setti í þvottavél í dag, og ákvað víst að setja símann minn með. Þannig að nú er hann bara ónýtur en hann er samt hreinn. :P Samt ekki gott að setja svona tæki í þvottinn. Vonandi finn ég bara e-h ódýran síma sem ég get fjárfest í.

Á morgun fer ég með frændfólkinu uppí sumarhús og ætlum að eyða helginni þar. Ætlum að athuga hvort það verði jafn mikill gestagangur þar líka einsog heima hjá þeim :P Það verður örugglega bara notalegt..

Fór inní Aalaborg í dag í international-tímanum. Skoðuðum eihverja gamla byggingu sem var notuð til að búa til rafmagn í gamladaga en er verið að gera það upp núna og í því á að vera eitthver aðstaða fyrir nemendur í einvherum skóla rétt hjá, kaffihús og svo eitthverjar íbúðir til leigu. Veit ekki afhverju við fórum að skoða þetta, en það var bara fínt að fara aðeins útúr bænum og fá annað umhverfi. Skoðuðm einnig sport-skóla í aalaborg að utan ( ? ) og fótboltavöll. Svo keyrðum við í gegnum ríkahverfið í aalaborg. Gaman að því...

Ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Læt heyra frá mér síðar :)

Hilsen - Laufey
Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

Uge 11

10. mars 2009 klukkan 22:01
Gott kveld :)

Jæja, þá er enn ein vikan byrjuð.
Um helgina var introfest - útaf því að það voru að byrja nýjir krakkar og þetta var eins þegar ég byrjaði. En það var bara gaman.. Um daginn var Blak-keppni. Allur skólinn skipt í lið og svo var keppt og þetta tók næstum allan daginn. Hvert lið átti að finna sér eitthvað þema og fara svo uppá loft og finna búniga við hæfi. Okkar lið valdi "Old people" Þannig að við fundum okkur ömmu og afa föt. Svo þegar allir voru tilbúnir þá var slegið köttin úr tunnunni, og að sjálfsögðu var nammi innifalið. Svo var bara farið að skreyta borðin fyrir kveldið. Svo um kvöldið var bara matur, sungum smá, farið í nokkra leiki sem teambildarnir sáu um. Svo var bara kveikt á mjúsik og svo var bara dansað, talað, drukkið øl fram eftir. Ég var nú samt bara til 1, því þreytan var komin og ekki hægt annað en að fara að sofa :P á sunnudaginn skrapp ég svo í heimsókn í Tylstrup til Stulla og co.

Í gær var svo grundtræning. Þá fórum við útá fótboltavöll og gerðum þrennskonar hlaupaæfingar. Það tók sooldið á. get ekki neitað því. En mjöög gott samt :) Svo var bara voða lítið að gerast.. fór í international, erum að byrja að gera stuttmynd. ég átti að leika eitthvað en ég gugnaði á því.. Tók sko ekki sénsinn á því..:P hehe. Eftir skóla fór ég svo í bæinn, sá flotta skó á flottu tilboði og skellti mér á þá. NewBalance hlaupaskór. Ætla samt bara að nota þá innanhús. Svo var bara fastur liður - Ræktin. Tók á því þar. Eftir það fór ég bara í stúrtu og svo bara í háttinn.
í dag var ég ekki í tíma fyrr en kl 13.00 Mjög næs.. Þvoði þvott og ryksugaði herbergið og svonna. Talaði svo við múttu gömlu. Svo í hádeginu var skólamyndataka. Adventure var svo síðasti tíminn og þar vorum við að læra að lesa á kort. Allt sama á dönsku og ég bara skildi næstum allt :) Danskan er bara eiginlega allveg komin.. aðeins farin að tala og allt :)
Eftir matinn fór ég svo í blak. Alltaf fjör á kvöldin hérna :)

Miðvikudagur á morgun.. vikan semsagt hálfnuð..

Vi ses
Laufey :)
Laufey Frímannsdóttir
3 athugasemdir

Linkur

06. mars 2009 klukkan 06:50

Ja, vildi bara koma þessum linki á framfæri :P..


http://www.fjardabyggd.is/Index/Forsida/Itarlegrifrettir/2034

:)
Laufey Frímannsdóttir
Engin athugasemd

Blaut vikubyrjun :)

05. mars 2009 klukkan 10:40
Uge 10. :)

Já þessi vika var aðeins öðruvísi, var einsog fyrsta vikan hjá mér því það voru að byrja svo margir nýir. :) En við byrjuðum að labba í 30 mín útí skóg og þar vorum við skipt í lið og svo voru alskyns þrautir sem við áttum að leysa. Allt tengdist þetta samvinnu. t.d voru tveir og tveir saman og einn setti á sig hjálm sem var búið að teipa  fyrir þannig að við sáum ekkert og svo áttum við að hlaupa saman. En það vildi svo til að það var geðveik rigning og mikil drulla þannig að maður varð blautur og skítugur. Þeir sem eru í international tímum þruftum að fá far til baka því við fengum heimsókn  eftir hádegi frá skóla sem bara þroskaheft fólk er í, og áttum að sinna því í tvo tíma í íþróttahöllinni. Hans, kallinn sem er með international tímana, lét okkur öll fara inní skólabílinn en þar sem það var svo mikil drulla festumst við og við þruftum að fara út að ýta. Og svo gátum við farið bæði til hægri og vinstri og hann fór náttlega vittlausa leið þannig að við vorum að ýta helling í vitlausa átt ! Þetta er svona kall sem vill ráða öllu, vill að við tjáum okkur meira en nennir svo ekki að hlusta á okkur. :S bara rugl.. Endaði með því að við stukkum uppá pallbíl og hann keyrði okkur útúr skóginum og þurftum svo að hlaupa heim..

En á þriðjudaginn var grundtræning- það var bara stöðvaþjálfun í höllinni og hlaup á milli stöðva. Eftir það var síðan dans. Lærðum swing dans. Það var skrautlegt.. hehe.. En það gekk á endanum. Lenti með ungverskastráknum og hann var ekkert að gera rétt, bara einsog hann vildi því hann er strákur -sagði hann. Hann er samt mjög fínn en vorum samt ekki í tagt því hann gerði ekkert einsog við áttum að gera.. sleppti bara einu steppi. Svo eftir það var allveg hundleiðinlegt og tilgangslaust hlaup um bæinn. Áttum að finna tvo pósta og hlaupa svo aftur uppí skóla. Bara fáranlegt.

Í gær var síðan farið á skauta :) í Fredrikshavn. Það var mjög gaman og það var allveg hægt að hlæja að hinum og þessum sem voru "góðir" á skautum og duttu nokkrum sinnum. Fórum í íshokkí, boðskauta (boðhlaup) og svo í lokinn var danskeppni. Ég tók samt ekki þátt í því því skutarnir sem ég fékk voru svo vondir við lappirnar mínar. En það var mjög gaman að horfa bara á hina :) Svo eftir hádegið var bara international tími. Svo eftir það þá fórum við Elín úti bæ. Byrjðum í Basement fatabúð og sáum flottar merkjagallabuxur á kúk og kanil. Einungis 200 DKK og ég splæsti mér í einar buxur. :) hef ekki gert það í langan tíma. mjög ánægð með þær.
Eftir kvöldmatinn var bara tekið á því í ræktinni. Það þýðir ekkert annað en að vera duglegur þar ef maður er að fara til sólalanda í enda maí :)
Þeir sem hafa verið að læra nudd í skólanum fengu eitt lokaverkefni, að nudda allan skólann. Allri fengu 20 mín hver. Fengum að ráða hvor það var eftri eða neðri líkami sem var nuddaður, ég valdi lappirnar því er með smá beinhimnubólgu og var reyndar mjög sársaukafullt. Hann vissi samt að því og ég vona að þetta verði betra.

Svo talaði ég við múttu í gærkvöldi. Hún hafði sko fréttir að færa. ég var víst ein af fimm sem voru tilnefnd sem Íþóróttamaður Fjarðabyggðar. og helduru ekki að ég hafi unnið þann heiður. :) Mér finnst það bara mjög gott þar sem ég er stödd í Danmörku. hehe.. En ég er mjög sátt með það.

Periode 2 byrjaði formelga í morgun. í 1. periode var ég með Spinning, fittness holdtræning og blak. En í Periode 2 er ég með Adventure, powersport og svo annað hvort batminton eða kampsport (bardagaíþróttir). Er ekki búin að ákveða. Adventure er mjög fjölbreytt, byrjuðum í morgun á því að klifra á klifurveggnum, svo verður farið á kajaka og margt fleira. Er ekki með þetta á hreynu ennþá. En snýst um samvinnu.

Jæja, ætla að láta þetta duga í bili. ég vona að þetta sé ekki of langt til þess að það nenni engin að lesa þetta.. :S :P hehe..

þangað til næst..
Laufey
Laufey Frímannsdóttir
4 athugasemdir

Halló.. !

28. febrúar 2009 klukkan 18:20
Góðan daginn :)

Ég var að hugsa um að byrja að skrifa hér hvað gerist hjá mér, hér í DK.
En já ég er semsagt í íþróttalýðháskóla í Brønderslev og hef það bara fínt. Á morgun koma 29 nýjir krakkar í skólann. Þannig að samtals verða 89 krakkar hér í skólanum og meiri hlutinn eru strákar. Ég sótti um að fá annan herbergisfélaga - því ég og þessi sem ég er með núna höfum ekkert verið að tala saman og mér líkar ekkert við hanna. Held bara að hún sé lokaðari en ég! og þá er nú mikið sagt.. :P hehe.. En þetta gekk eftir og ég sem sagt fæ nýjan herbergisfélaga á morgun :) Er búin að vera að pakka niður dótinu mínu í dag og ég vona að ég geti farið inní hitt herbergið í kvöld eða á eftir.

Mars er að byrja á morgun ! þetta er búið að líða roosalega fljótt get ég sagt. Fór til Frakklands á skíði í byrjun febrúar og mér finnst vera svo stutt síðan ég kom þaðan.. en það eru 3 vikur síðan..

Svo í enda maí förum við svo aftur í ferðalag saman - til Lanzarote, eða Club LaSanta :) Hlakka rooslaega til.
Hér er vefsíðan - http://www.clublasanta.com/

En í skólanum eru 4 aðrir íslendingar, tveir strákar og tvær stelpur. Við erum öll góðir vinir og förum í ræktina alltaf saman, - það er mjög fínt, erum alltaf að hvetja hvort annað og svona :o) Svo á morgun kemur ein íslensk stelpa og ætlum að taka vel á móti henni - aðsjálfsögðu.

Þangað til næst..

 - Laufey :)
Laufey Frímannsdóttir
3 athugasemdir